01.02.2015
Nú má nálgast fréttabréf og matseðil
febrúarmánaðar hér á heimasíðunni. Smellið hér til að opna
fréttabréfið..
Lesa meira
30.01.2015
Fimmtudaginn 5. febrúar 2015
er áætlað að nemendur Naustaskóla fari í Hlíðarfjall til að njóta samveru og útiveru ef veður leyfir. (Ef ekki viðrar
verður gerð önnur tilraun þann 6. febrúar) Þeim nemendum sem ekki geta farið í fjallið af heilsufars- eða öðrum mjög
brýnum ástæðum verður boðið upp á afþreyingu í skólanum.
Nemendur mæta eins og venjulega kl. 8:10
Farið verður frá skólanum sem hér segir:
4.-10. bekkur kl. 08:20 en 1.-3. bekkur kl. 09:00
Lagt verður af stað úr Hlíðarfjalli sem hér segir:
1. – 3. bekkur kl. 11:20 en 4.-10. bekkur kl. 12:00
Þegar komið er í skóla aftur verður matur samkvæmt venju en eftir það fara nemendur heim eða í Frístund, nema að kennsla verður
í valgreinum í 8.-10. bekk.
Nemendur í 4.-10. bekk geta fengið lánaðan búnað endurgjaldslaust en nemendur í 1.-3. bekk geta því miður ekki fengið
lánaðan búnað en er velkomið að hafa með sinn eigin búnað eða snjóþotur og sleða.
Útbúnaður:
Skíði, bretti, snjóþotur, þoturassar, svartir plastpokar og sleðar eru leyfðir til fararinnar.
Hjálmar eru nauðsynlegir! (Bent er á að hægt er að nota reiðhjólahjálma)
Mikilvægt er að nemendur séu vel klæddir og í vel merktum fatnaði.
Ekki gleyma snjóbuxunum, vettlingunum eða húfunni.
Nesti: nemendur komi sjálfir með hollt og gott nesti. Sjoppa er ekki opin.
Nemendur fá afhent lyftukort þegar þeir mæta á svæðið. Ef nemendur óska eftir að verða eftir í fjallinu þegar
dagskrá lýkur þurfa foreldrar að hafa óskað eftir því við umsjónarkennara eða ritara skólans. Lyftukortin gilda allan daginn en
skila þarf lánsbúnaði eða semja um leigu á honum. Ekki er hægt að bjóða upp á skíðakennslu en við munum
aðstoða nemendur eins og kostur er.
Útivistardagurinn er með öllu gjaldfrjáls fyrir nemendur.
Starfsfólk Naustaskóla
Lesa meira
28.01.2015
Samtaka (Svæðisráð foreldra í
grunnskólum Akureyrar) í samvinnu við SAFT og Heimili og skóla stendur fyrir fræðslufundi fyrir foreldra um notkun snjalltækja og hætturnar sem af
þeim geta stafað.
Fundurinn verður haldinn í Hofi fimmtudaginn 29. janúar kl. 20:00 og er öllum opinn. Smellið hér til að sjá dagskrá fundarins..
Lesa meira
26.01.2015
Nemendur á unglingastigi spreyttu sig á því verkefni í síðustu viku að þjálfa ímyndunaraflið og sköpunarhæfnina
með því að búa til sem frumlegasta hluti úr endurunnu efni. Þau fengu mjólkurfernu, eggjabakka, smá límband, plast og tappa og
áttu að búa til eitthvað nýtt, frumlegt og nytsamlegt og kynna svo hugmyndina sína fyrir öllum hópnum. Þarna gat að líta hinar
ýmsustu smíð og með því að smella hér má
sjá nokkur dæmi um afurðirnar og frá vinnunni..
Lesa meira
11.01.2015
Í samstarfi við mentor teljum við nú
að við höfum komist fyrir vandamál í tölvupóstsendingum og eigum því von á að allir póstar séu farnir að berast
frá skólanum, jafnt til g-mail notenda og annarra. Þó er rétt að minna g-mail notendur á að það kann að vera að póstar
lendi í ruslpósti (junk-mail) og þá þarf að segja póstkerfinu að ekki sé um ruslpóst að ræða.
Ef einhverjir vakna upp við að þeir eru ekki að fá pósta frá skólanum, t.d. vikupósta umsjónarkennara sem að jafnaði eru sendir
út á föstudögum, þá biðjum við viðkomandi um að gera okkur viðvart.
Lesa meira
07.01.2015
Enn virðist eitthvað vera um að g-mail notendur fái ekki póst sem sendur er frá skólanum í gegnum mentorkerfið. Unnið er að lausn
málsins..
Lesa meira
02.01.2015
Um leið og við óskum ykkur
gleðilegs árs og þökkum samstarfið á liðnu ári, vekjum við athygli á fyrsta fréttabréfi skólaársins, en það má nálgast hér..
Lesa meira
19.12.2014
Við óskum nemendum okkar og
forráðamönnum gleðilegra jóla og þökkum fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Við minnum á að
mánudagurinn 5. janúar er starfsdagur og þann dag er Frístund lokuð.
Kennsla að loknu jólaleyfi hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 6.
janúar.
Jafnframt bendum við á að það er tilvalið að koma sér í jólaskapið með því að skoða þetta myndband sem gert var þemadögunum nú í desember..
Gleðileg jól!
Lesa meira
19.12.2014
Litlu jólin í
Naustaskóla verða föstudaginn 19. desember. Að þeim loknum fara nemendur í jólafrí.
Á litlu jólunum mæta allir nemendur kl. 8:30 og skóladeginum lýkur kl. 11:00.Frístund verður opin á litlujóladaginn kl.
7:45-16:15.
Lesa meira
18.12.2014
Upp á síðkastið virðist hafa borið á því að tölvpóstur frá skólanum, sem sendur er í gegnum mentorkerfið,
hafi ekki komist til skila. Líklega er þetta bundið við þá sem eru með gmail-netföng en þar virðist pósturinn flokkast sem
ruslpóstur (junk) og þá þarf að gefa póstforritinu skipun um að hætta að flokka póst frá mentor sem rusl..
Ef aðrir en g-mail eru ekki að fá póst frá okkur þá endilega látið okkur vita..
Lesa meira