Jákvæður agi er uppeldisstefna byggð á sjálfsstjórnarkenningum
Höfundar:
· Alfred Adler, Rudolf Dreikurs, William Glasser, Jane Nelsen o.fl.
Það sem stýrir hegðun:
· Fólk er knúið áfram af innri þörfum – að tilheyra.
Við höfum mest áhrif:
· Þegar við höfum samskipti sem byggjast á gagnkvæmri virðingu.
Áhrifamestu verkfærin eru:
· Samhygð, skilningur, þrautalausnir, góðvild og festa.
Virðing er:
· Gagnkvæm, í samskiptum eiga allir aðilar skilið virðingu.
Viðbrögð við óæskilegri hegðun:
· Að leita orsaka, finna lausnir og fylgja ákvörðunum eftir.
Viðbrögð við hættulegri hegðun:
· Skýr eftirfylgd og rökréttar afleiðingar.
Nám fer fram þegar:
· Barn upplifir tilgang, sjálfsstjórn, þátttöku.