Dagný Björg Gunnarsdóttir er ráðgjafi og verkefnastjóri/tengiliður við Naustaskóla. Skrifstofa hennar er á jarðhæð skólans í stjórnunarálmu við aðalinngang.
Náms- og starfsráðgjöf er unnin með nemendum, forráðamönnum, kennurum og öðrum sérfræðingum innan og utan skólans að ýmiss konar velferðarstarfi er snýr að námi, líðan og framtíðaráformum nemenda. Lögð er áhersla á að ráðgjöfin standi öllum til boða og ekki þurfi að vera fyrir hendi vandamál eða vanlíðan hjá nemendum til að þeir geti komið í viðtal. Ef nemendur langar til að ræða við einhvern um daginn og veginn eða vonir sínar og væntingar í lífinu þá er um að gera að panta tíma. Ráðgjafinn getur líka boðað nemendur til viðtals og ekki þarf að vera nein sérstök ástæða fyrir boðuninni.
Ráðgjafi situr í nemendaverndarráði og vinnur í nánu samstarfi við foreldra, kennara og skólastjórnendur eftir því sem við á. Einnig hefur hann samráð og samstarf við aðra sérfræðinga innan eða utan skóla.
Algjör þagnarskylda ríkir varðandi allar upplýsingar um mál einstakra nemenda eða nemendahópa, að undanskyldum ákvæðum í lögum um barnavernd nr. 80/2002.