1. maí hlaup UFA

Þann 1. maí heldur UFA árlegt grunnskólahlaup sitt en félagið hefur haldið 1. maí hlaupið allt frá fyrstu starfsárum sínum. Hlaupið er keppni á milli grunnskóla þar sem keppt er um hlutfallslega þátttöku og sá skóli sem sigrar hlýtur veglegan bikar. Í skólakeppninni geta krakkarnir valið um að hlaupa 2 eða 5 km. og 5 km hlaupið er einnig opið öðrum keppendum.

Hlaupaleiðir og vegalengdir

Hlaupið er frá Þórsvellinum, vegalengdir eru þrjár 400 m, 2 km, 5 km.

Hlaupaleið í 2 km hlaupi:

Hlaupið er ræst við suðurenda stúkunnar. Hlaupið eftir brautinni en út af henni á móts við Bogann. Hlaupið eftir stéttinni meðfram Boganum og út um hliðið neðan við hann. Þar er tekin u-beygja og farið inn á malarveginn neðan við íþróttavöllinn. Stígurinn hlaupinn út á enda og niður Háhlíð. Beygt þar til hægri og hlaupið eftir Höfðahlíðinni framhjá Glerárskóla upp að Drangshlíð. Beygt þar til hægri og inn á stíginn ofan við íþróttavöllinn. Hlaupið eftir stígnum að Hamri og inn á völlinn ofan við Hamar og endað inni á vellinum á sama stað og byrjað var.

Hlaupaleið í 5 km hlaupi:

Hlaupið er ræst austan megin á vellinum í beygjunni sunnan megin á vellinum, hlaupinn er hálfhringur á vellinum og út af honum að norðan (ofan við Hamar) og beygt upp á göngustíginn þar ofan við. Hlaupið eftir stígnum niður að Skarðshlíð og yfir götuna á gangbrautinni. Skarðshlíðinni fylgt að Borgarbraut, farið yfir Borgarbrautina og inn á göngustíginn sem liggur ofan Glerár og honum fylgt upp á Hlíðarbraut og síðan niður á Þingvallastræti. Beygt inn á göngustíg á móts við Hrísalund, framhjá háskólanum og gegnum undirgöngin undir Borgarbrautina, yfir Glerá og upp á Höfðahlíða. Krækt niður fyrir Glerárskóla og inn á völlinn og hlaupinn u.þ.b. hálfur hringur á vellinum.

Keppni hefst kl. 12:00 í krakkahlaupinu en 12:30 í 5 km -en athugið að skráningu lýkur kl. 11:30 Hlaupin verða ræst í þessari röð:

Leikskólahlaup kl. 12:00

Allir leikskólakrakkar hlaupa saman einn hring á vellinum.

2 km. hlaup, fyrsti hópur kl. 12:10

7-8 ára stelpur og strákar

9-10 ára stelpur og strákar

11-12 ára stelpur og strákar

13 ára og eldri

5 km hlaup kl. 12:30

Allir hlauparar ræstir á sama tíma í suðausturhorni vallarins kl. 12:30.

Foreldrum er velkomið að fylgja börnum sínum í hlaupinu og þurfa ekki að greiða þátttökugjöld fyrir það.

Skráning

Æskilegt er að sem flestir skrái sig fyrir keppnisdag, það auðveldar mótshöldurum utanumhald og dregur úr örtröð á hlaupadag. Keppnisgjöld eru því lægri í forskráningu auk þess sem þeir sem skrá sig í forskráningu eiga möguleika á að hreppa útdráttarverðlaun frá Sportveri.

Hægt er að forskrá sig í Sportveri á þriðjudag og miðvikudag (29. og 30. apríl) milli kl. 14 og 18:30. Einnig er hægt að skrá sig á netinu, með því að senda póst á netfangiðufa@ufa.is, gefa þarf upp nafn, kennitölu og vegalengd sem á að hlaupa. Forskráningu lýkur kl. 18:30 þriðjudaginn 30. apríl. Þeir sem skrá sig á netinu þurfa að mæta í Hamar milli kl. 10:00 og 11:30 á keppnisdag og sækja númerið sitt og greiða þátttökugjaldið.

Athugið að við erum ekki með posa, svo greiða þarf með peningum, eða millifæra á reikning félagsins og prenta út kvittun sem framvísað er þegar númerin eru sótt.

Þáttökugjöld

Leikskólabörn kr. 500 í forskráningu / kr. 1000 á hlaupadag Grunnskólabörn kr. 1000 í forskráningu / kr. 1500 á hlaupadag Fullorðnir kr. 1500 í forskráningu / kr. 2000 á hlaupadag

Fjölskylduafsláttur: Fjölskylda (foreldrar og börn) greiðir að hámarki kr. 3000 í forskráningu / kr. 3500 á hlaupadag.

 

Verðlaun, viðurkenningar og veitingar

Allir þátttakendur fá viðurkenningarpening, Greifa-pizzu og hressingu frá MS í lok hlaups.

Þeir skólar sem eru með hæst hlutfall þátttakenda annars vegar í flokki fámennra skóla (1-99 nemendur) og hins vegar í flokki fjölmennra skóla (100 nemendur eða fleiri) hljóta veglegan farandbikar og eignarbikar.

Útdráttarverðlaun fyrir þá sem skrá sig í forskráningu.

Athugið að ekki verða veitt verðlaun fyrir fyrstu sætin í hverjum flokki, hvorki í 2 km né 5 km hlaupi, en röð og tímar allra sem hlaupa 5 km verða birtir á heimasíðu UFA eftir hlaupið.