1. maí hlaup UFA

ATH: Hlaupinu er frestað til 14. maí!!! Þann 1. maí heldur UFA árlegt grunnskólahlaup sitt en hlaupið er keppni á milli grunnskóla þar sem keppt er um hlutfallslega þátttöku og sá skóli sem sigrar hlýtur veglegan bikar. Síðastliðið vor vann Naustaskóli bikarinn í hópi fjölmennari skólanna og nú er spurning hvort við náum að halda honum! Í skólakeppninni geta krakkarnir valið um að hlaupa 2 eða 5 km. og 5 km hlaupið er einnig opið öðrum keppendum.

Hlaupaleiðir og vegalengdir
Hlaupið er frá Þórsvellinum, vegalengdir eru þrjár 400 m, 2 km, 5 km.

Hlaupaleið í 2 km hlaupi:
Hlaupið er ræst við suðurenda stúkunnar. Hlaupið eftir brautinni en út af henni á móts við Bogann. Hlaupið eftir stéttinni meðfram Boganum og út um hliðið neðan við hann. Þar er tekin u-beygja og farið inn á malarveginn neðan við íþróttavöllinn. Stígurinn hlaupinn út á enda og niður Háhlíð. Beygt þar til hægri og hlaupið eftir Höfðahlíðinni framhjá Glerárskóla upp að Drangshlíð. Beygt þar til hægri og inn á stíginn ofan við íþróttavöllinn. Hlaupið eftir stígnum að Hamri og inn á völlinn ofan við Hamar og endað inni á vellinum á sama stað og byrjað var.

Hlaupaleið í 5 km hlaupi:
Hlaupið er ræst á vellinum og beygt upp á göngustíginn ofan við Hamar. Hlaupið eftir stígnum niður að Skarðshlíð og yfir götuna á gangbrautinni. Skarðshlíðinni fylgt að Borgarbraut, farið yfir Borgarbrautina og inn á göngustíginn sem liggur ofan Glerár og honum fylgt upp á Hlíðarbraut og síðan niður á Þingvallastræti. Beygt inn á göngustíg á móts við Hrísalund, framhjá háskólanum og gegnum undirgöngin undir Borgarbrautina, yfir Glerá og upp á Höfðahlíð. Krækt niður fyrir Glerárskóla og inn á völlinn að markinu.

Keppni hefst kl. 12:00 í krakkahlaupinu en 12:45 í 5 km -en athugið að skráningu lýkur kl. 11:00  Hlaupin verða ræst í þessari röð:

Leikskólahlaup kl. 12:00
Allir leikskólakrakkar hlaupa saman einn hring á vellinum.

2 km. hlaup, fyrsti hópur kl. 12:15
7-8 ára stelpur og strákar
9-10 ára stelpur og strákar
11 ára og eldri, stelpur og strákar
Foreldrum er velkomið að fylgja börnum sínum í hlaupinu og þurfa ekki að greiða þátttökugjald fyrir það.

5 km hlaup kl. 12:45
Allir hlauparar ræstir á sama tíma.

Skráning

Æskilegt er að sem flestir skrái sig fyrir keppnisdag, það auðveldar mótshöldurum utanumhald og dregur úr örtröð á hlaupadag. Keppnisgjöld eru því lægri í forskráningu auk þess sem þeir sem skrá sig í forskráningu eiga möguleika á að hreppa útdráttarverðlaun frá Sportveri og Brooks.

Hægt er að forskrá sig í Sportveri á miðvikudag og fimmtudag (29. og 30. apríl) milli kl. 14 og 18:30. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda póst á netfangið ufa@ufa.is, gefa þarf upp nafn, kennitölu, skóla (grunnskólabörn) og vegalengd sem á að hlaupa. Forskráningu lýkur kl. 18:30 þann 30. apríl. Þeir sem skrá sig á netinu þurfa að mæta í Hamar milli kl. 9:30 og 11:00 á keppnisdag og sækja númerið sitt og greiða þátttökugjaldið.

Þáttökugjöld

Börn kr. 1000 í forskráningu / kr. 2000 á hlaupadag
Fullorðnir kr. 1500 í forskráningu / kr. 2500 á hlaupadag
Fjölskylduafsláttur: Fjölskylda (foreldrar og börn) greiðir að hámarki kr. 3000 í forskráningu / kr. 4000 á hlaupadag.

 

Verðlaun, viðurkenningar og veitingar

Allir þátttakendur fá Greifa-pizzusneið og hressingu frá MS í lok hlaups gegn afhendingu þátttökunúmers.
Allir þátttakendur í leikskólahlaupi og 2 km hlaupi fá viðurkenningarpening.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjá fyrstu keppendur í eftirtöldum aldurshópum í 5 km hlaupinu:
11-12 ára
13-14 ára
15-16 ára
17 ára og eldri

Þeir skólar sem eru með hæst hlutfall þátttakenda annars vegar í flokki fámennra skóla (1-99 nemendur) og hins vegar í flokki fjölmennra skóla (100 nemendur eða fleiri) hljóta veglegan farandbikar og eignarbikar.

Útdráttarverðlaun fyrir þá sem skrá sig í forskráningu.