Þrjá fimmtudaga í október og nóvember býðst nemendum í 3. og 4. bekk að bregða sér á skauta í boði
Skautafélags Akureyrar. Nú eru tvö skipti búin en síðasta skiptið verður næstkomandi fimmtudag. Það er að
sjálfsögðu misjafnt hversu stöðugir krakkarnir eru á skautunum en allir hafa þó gaman af að spreyta sig enda er leikurinn til þess gerður
að kynna skautana. Hér má sjá myndir frá fimmtudeginum
11. október en þá var fyrsta skautaferð þessara árganga.