Aðalfundur Foreldrafélags Naustaskóla

Aðalfundur Foreldrafélags Naustaskóla verður haldinn í sal skólans kl. 20:00 fimmtudagskvöldið 19. september. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, kynning á Mentor og auk þess kemur ungur maður að nafni Kristján Guðmundsson með fyrirlesturinn "Gefst aldrei upp". Kristján lenti í alvarlegu vinnuslysi og segir okkur frá því hvernig hann tókst á við þá lífsreynslu. Hann kemur aftur í skólann með sama fyrirlestur fyrir nemendur á næstu dögum. Ætlast er til að a.m.k. einn fulltrúi frá hverju heimili mæti á fundinn! Kaffi og kleinur í boði :) Stjórn Foreldrafélagsins