Tveir nemenda okkar, þær Kolfreyja og Ágústa í 6. bekk, eru stundum að dunda sér við að semja lög og texta og Karl tónmenntakennari
hefur aðstoðað þær við upptöku á lagasmíðunum. Stelpurnar voru í viðtali í þættinum Leynifélaginu sem er
stórskemmtilegur barna- og unglingaþáttur á Rás 1 og er sendur út alla virka daga nema fimmtudaga kl. 20:00. Smellið hér til að heyra þáttinn...