Allir lesa!

Naustaskóli er að sjálfsögðu með í keppninni Allir lesa og af því um er að ræða keppni á annað borð þá stefnum við að sjálfsögðu á sigur!  Nú er um að gera að allir sem vettlingi (eða lesefni) geta valdið, hvort sem þar er um að ræða nemendur, starfsfólk eða foreldra, fari inn á síðuna www.allirlesa.is, skrái sig í lið Naustaskóla og hefjist svo handa við að lesa og skrá... koma svo!!