08.09.2010
Alþjóðadagur læsis er 8.
september. Háskólinn á Akureyri, Amtsbóksafnið og Akureyrarstofa standa að undirbúningi á degi læsis á Íslandi og eru
landsmenn hvattir til að leggja frá sér verk og lesa fyrir sig og aðra kl. 11:00–11:15. Ennfremur er fólk hvatt til þess að skipuleggja
sjálft læsisviðburði. Það má gera með því að lesa upp fyrir hvert annað, segja sögur, fara með ljóð eða
á annan hátt nota málið til ánægjulegra samskipta. Hugmyndahefti um læsisviðburði má nálgast hér.