Árshátíð Naustaskóla

Þessir gæjar eru meðal þeirra sem verða í sýningu 4.-7. bekkjar....!!
Þessir gæjar eru meðal þeirra sem verða í sýningu 4.-7. bekkjar....!!
Árshátíð Naustaskóla verður haldin fimmtudaginn 4. mars. Sýning hjá 1.-3. bekk verður kl. 16:15 en sýning hjá 4.-7. bekk verður kl. 17:15. Sýningarnar verða í salnum á efri hæð skólans. Á eftir hvorri sýningu verða seldar kaffiveitingar á neðri hæð skólans til styrktar skólabúðaferð 7. bekkjar,verð fyrir fullorðna er 500 kr. en fyrir börn 300 kr. Athugið að ekki er hægt að greiða með greiðslukortum. Allir velkomnir, sjáumst í hátíðarskapi!