Árshátíð Naustaskóla 2014

Árshátíð Naustaskóla haustið 2014 verður fimmtudaginn 20. nóvember.  Á árshátíðinni verða þrjár sýningar, kl. 13:30, kl. 15:30 og kl. 17:30.  Eftir hverja sýningu verða seldar kaffiveitingar á neðri hæð skólans, verð fyrir fullorðna er 800 kr. en fyrir börn á grunnskólaaldri og að þriggja ára aldri 500 kr. - frítt fyrir tveggja ára og yngri. Athugið að ekki er hægt að greiða með greiðslukortum. Nemendum hefur verið raðað saman í þrjá hópa þannig að systkini sýni á sömu sýningu, skipan þessara hópa má sjá með því að smella hér... Veitingaskipulagið á kaffisölu verður með svipuðu sniði og undanfarin ár þ.e. að öll heimili koma með einn rétt/köku. Röðun rétta eftir bekkjum verður eftirfarandi:

1.    heitur réttur
2.    marens
3.    marens
4.    pönnukökur / skinkuhorn / snúðar / flatkökur með hangikjöti
5.    pönnukökur / skinkuhorn / snúðar / flatkökur með hangikjöti
6.    skúffukaka
7.    muffins
8.    terta/kaka (annað en marens eða skúffukaka)
9.    terta/kaka (annað en marens eða skúffukaka)
10.   heitur réttur
Móttaka veitinganna er í heimilifræðistofunni og koma þarf með veitingarnar fyrir kl. 12:00.

Allir velkomnir, sjáumst í hátíðarskapi!