Breytingar á gjaldskrám

Á fundi bæjarstjórnar þann 4. des. sl. voru samþykktar breytingar á gjaldskrám grunnskóla sem taka gildi 1. janúar nk.  Frá þeim tíma verður gjaldskráin sem hér segir: Stök máltíð í mötuneyti 501 kr.  Hver máltíð í annaráskrift 371 kr. Áskrift á mjólk 2.650 kr. á önn.  Ávaxtaáskrift 6.042 kr. á önn. Frístund: Skráningargjald (20 klst.) 6.600 kr. en hver klukkustund umfram það kostar 330 kr.