Dagur tónlistarskólanna

Í tilefni af degi tónlistarskólanna verður Tónlistarskólinn á Akureyri með opið hús í Hofi laugardaginn 26. febrúar.  Boðið verður upp á brot af því besta sem á sér stað innan veggja skólans og er markmiðið að aðstandendur, nemendur, kennarar og allir þeir sem hafa áhuga á starfinu geti átt ánægjulega stund saman, sér að kostnaðarlausu.  Dagurinn er tilvalið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á námi við skólann til að kynna sér hvað stendur til boða.

Dagskrá:

09.45    Marimbana í Hamragili

10.00    Hvaða hljóðfæri er nú þetta??? - Hljóðfærakynning í Hamraborg

10.45    Spoogie Boogie og Marimbana sveitir Ludvigs Forberg í Hamragili

11.00    Klassískir tónleikar í Hömrum

12.45    Tónæði í Hamragili

13.00    Samspilstónleikar í Hamraborg

13.45    Suzukikrílatónleikar í Hamragili

14.00    Ritmískir tónleikar í Hömrum

14.45    Söngtónleikar Margotar Kiis í Hamragili

15.00    Hljómsveitartónleikar í Hamraborg – Sinfóníuhljómsveit, Big Band og Tangóband skólans leika

Stofur verða opnar fyrir gesti og gangandi frá kl. 10.00 til 13.00 og býður veitingastaðurinn 1862 kaffi og Köku Dags Tónlistarskólanna á aðeins 890 krónur og barnaköku og kakó á aðeins 490 krónur.

Allir velkomnir.