28.02.2012
Laugardaginn 3. mars verður Dagur
tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur í Hofi með hljóðfærakynningu og fjölda tónleika. Kl. 11:00 verður
hljóðfærakynning í Hamraborg , að henni lokinni verður spennandi ratleikur um Hof og eru glæsileg verðlaun fyrir
vinningshafa.
Kl. 11.45 – 14:00 verða kennslustofur opnar , þá er tilvalið tækifæri til að kynna sér hljóðfæri og lífið í
Tónlistarskólanum, fá að prófa mismunandi hljóðfæri. Grunnskólanemendur 1. – 4. bekkja eru hvattir til að mæta með
foreldrum. Nánari upplýsingar um aðra viðburði dagsins eru á http://www.tonak.is/
Tónlistarskólinn á Akureyri