Dagur tónlistarskólanna í Hofi 23. febrúar 2013
Laugardaginn 23. febrúar verður Dagur tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur í Hofi með hljóðfærakynningu og
fjölda tónleika. Kl. 11:00 verður hljóðfærakynning í Hamraborg , að
henni lokinni verður spennandi ratleikur um Hof og eru glæsileg verðlaun fyrir vinningshafa.
Kl. 11:45 – 12:30 verða kennslustofur opnar , þá er tilvalið tækifæri til að kynna sér hljóðfæri og
lífið í Tónlistarskólanum, fá að reyna sig við mismunandi hljóðfæri.
Hvetjum grunnskólanemendur 1. – 4. bekkja að mæta með foreldrum og kynna sér starfið.
Nánari upplýsingar um aðra viðburði dagsins eru á www.tonak.is
Tónlistarskólinn á Akureyri