Ekki meir - fræðslufyrirlestur

Fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála verður haldið fimmtudaginn 11. október í Félagsheimili KFUM og KFUK Sunnuhlíð 12 kl. 16.30 – 18.00. Fyrirlesari er Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og höfundur EKKI MEIR.  EKKI MEIR er nýútkomin bók sem er leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn.  Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn! Æskulýðsvettvangurinn, samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, KFUM og KFUK á Íslandi, Bandalags íslenskra skáta og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, ætlar á komandi haustmánuðum að fara hringferð um landið með 90 mínútna fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála fyrir aðildarfélög. Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur, kemur til með að flytja fyrirlestur byggðan á ný út kominni bók sinni, Ekki meir, sem er leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn.
Tilgangurinn með þessu fræðsluerindi er að vekja athygli á þessum málaflokki, opna betur augu starfsfólks og sjálfboðaliða fyrir því að vera vakandi og ávallt á verði gagnvart einelti og annarri óæskilegri hegðun.
Einnig er það á dagskrá að kynna Aðgerðaráætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun.