Eggjakjólinn glæsilegi!
Furðuverk 2013, hönnunarkeppni félagsmiðstöðva á Akureyri, var haldin á Glerártorgi laugardaginn 2. nóvember.
Tveir hópar úr Naustaskóla tóku þátt í keppninni, þar sem keppt var um hár, förðun og flottustu hönnunina. Þær
Dagný, Marín og Katrín fengu verðlaun fyrir flottustu hárgreiðsluna. Eva, Hulda, Monika og Júlía fengu síðan verðlaun fyrir flottustu
hönnunina, eggjakjólinn góða. Þetta er frábær árangur hjá stelpunum og við óskum þeim hjartanlega til
hamingju! Smellið hér til að sjá nokkrar
myndir..