30.11.2010
Ákveðið hefur verið að
bjóða upp á foreldranámskeið um jákvæðan aga í janúarmánuði. Um verður að ræða tveggja kvölda
námskeið sem haldið verður í samstarfi Naustaskóla, Naustatjarnar, Glerárskóla og Hrafnagilsskóla og mun það verða opið
foreldrum barna úr öllum skólunum. Á námskeiðinu verður hugmyndafræði stefnunnar miðlað til foreldra og kynntar leiðir til að
hagnýta aðferðir jákvæðs aga í uppeldinu heima fyrir. Til að kanna áhuga biðjum við áhugasama um að forskrá sig
með því að smella hér en síðan verður haft samband við hina
áhugasömu í byrjun janúar.