Lovísa Marý og Bjarney Guðrún
Þann 2. apríl fór fram lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar á Akureyri þar sem tveir nemendur úr 7. bekkjum hvers skóla reyndu með
sér í upplestri og framsögn. Það er skemmst frá því að segja að keppendur okkar í Naustaskóla, þær Bjarney
Guðrún Jónsdóttir og Lovísa Marý Kristjánsdóttir, stóðu sig frábærlega og fór svo að lokum að Bjarney
Guðrún hlaut 2. sætið í keppninni. Stórgóður árangur sem byggir auðvitað á mikilli æfingu og vandvirkni, til
hamingju!