05.11.2013
Nýja aðalnámskráin boðar talsverðar breytingar og
uppstokkun á starfsháttum og inntaki náms á Íslandi. Af þeim sökum standa Heimili og skóli fyrir kynningarfundum víðs vegar um
landið árið 2013 þar sem foreldrum er boðið að koma og fræðast um nýja námskrá. Á kynningunum verður farið í
eftirfarandi atriði:
• Grunnþættir menntunar
• Ný og fjölbreytt vinnubrögð
• Hæfni og lykilhæfni
• Nýtt námsmat
• Skörun hæfniþrepa
Næsti fundur verður haldinn þriðjudaginn 5. nóvember kl. 18 á sal Brekkuskóla á Akureyri.
Samhliða fundunum útbúa samtökin fjölbreytt fræðsluefni sem birt er á vef samtakanna (www.heimiliogskoli.is/adalnamskra).