Frístund - nýjar reglur um tekjutengda afslætti

Nú hafa endurskoðuð tekjuviðmið og nýjar reglur um tekjutengda afslætti verið afgreiddar í bæjarráði Akureyrarbæjar.  

Þeir foreldrar / forráðamenn sem telja sig geta nýtt afslætti vegna tekjutengingar á komandi skólaári þurfa að sækja um og skila gögnum þar að lútandi gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar fyrir 15. ágúst 2024.