Fyrirlestur í kvöld með Siggu Dögg kynfræðingi

Sigga Dögg
Sigga Dögg

Sigga Dögg kynfræðingur er búin að vera með fræðslu fyrir 8. bekkinga í grunnskólum Akureyrar. Í kvöld, þriðjudag 12. janúar,  mun hún vera með sambærilega fræðslu fyrir foreldra barna frá 5.-10. bekk og verður fyrirlesturinn haldinn í Síðuskóla kl. 20. Sigga Dögg talar mjög opinskátt um náin samskipti einstaklinga, kynlíf og klám.