08.11.2011
Verkefnisstjórn í aðgerðum
gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum baráttudegi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum
fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis. Í tilefni af baráttudeginum hefur verið
opnuð heimasíðan www.gegneinelti.is og þar gefst fólki kostur á að undirrita sérstakan
þjóðarsáttmála gegn einelti. Við hvetjum alla til að kíkja á síðuna http://www.gegneinelti.is/ og setja nafn sitt við sáttmálann..