Átakið "göngum í skólann"
var sett í dag, miðvikudaginn 5. september í Kelduskóla í Grafarvogi en þetta er sjötta skipti sem Ísland tekur þátt í
þessu alþjóðlega verkefni. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Á
alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann
dagurinn er 6. október. Göngum í skólann verkefnið fer fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur
á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 5. október. Við hvetjum að sjálfsögðu alla okkar
nemendur til að ganga eða hjóla í skólann, það er umhverfisvænt og eflir heilsuna!
Meginmarkmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan
hátt til og frá skóla. Um leið er ætlunin að:
- Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um
ávinning reglulegrar hreyfingar.
- Kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli.
- Draga úr umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
- Betra og hreinna loft ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi.
- Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.
Samfélagsvitund eykst.
- Hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að
streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið,
Landlæknisembættið, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.
Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Örvar Ólafsson verkefnastjóra hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands
með tölvupósti
orvar@isi.is eða í s. 514-4000. Heimasíða verkefnisins er
www.gongumiskolann.is.