02.11.2012
Hrekkjavökuböllum sem áformuð voru á föstudag verður frestað
til mánudagsins 5. nóvember vegna veðurútlits og framkvæmda í samkomusal.
Semsagt: Mánudaginn 5. nóvember halda nemendur í 7. bekk hrekkjavökuböll til fjáröflunar fyrir væntanlega skólabúðaferð
þeirra í vor. Aðgangseyrir og tímasetningar eru sem hér segir:
1.-3. bekkur kl. 16:00-17:30 - aðgangseyrir 500 kr. (popp og svali innifalið)
4.-7. bekkur kl. 18:00-20:00 - aðgangseyrir 400 kr. (sjoppa opin)
Þetta er fyrsta ballið í nýja salnum okkar - nýtt hljóð- og ljósakerfi - draugahús og spákona!