Hvað gerir barnið þitt í tölvunni?

Opinn fundur foreldra grunnskólabarna á Akureyri um tölvunotkun, haldinn á vegum Samtaka - svæðisráðs foreldra grunnskólabarna á Akureyri. Fundurinn er haldinn í Brekkuskóla þann 24. mars kl. 20:00. Framsögumenn:Guðjón Hreinn Hauksson, foreldri Gunnar Svanbergsson, sjúkraþjálfari Anna Elísa Hreiðarsdóttir og Eygló Björnsdóttir lektorar við Háskólann á Akureyri Bergþóra Þórhallsdóttir aðstoðarskólastjóri Brekkuskóla Eftir hlé munu framsögumenn ásamt Grétu Kristjánsdóttur forvarnarfulltrúa og Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur sálfræðingi taka þátt í umræðum með foreldrum.
Markmiðið er að fá fram sýn foreldra á þróun mála hjá börnum í þeim tækniheimi sem við búum við í dag, heilbrigði þeirra og hvernig við foreldrar getum spornað gegn óæskilegri notkun, stuðlað að bættu heilbrigði barna og aukið forvarnir.

Kaffi og veitingar verða í boði foreldrafélaga grunnskólanna.
Mætum og sínum styrk okkar í samstöðunni.

Samtaka - svæðisráð foreldra grunnskólabarna á Akureyri