Skólinn annast innkaup á námsgögnum fyrir nemendur og innheimtir gjald fyrir það, en foreldrar þurfa að versla lítillega fyrir nemendur í 4.-10. bekk. Ef einhver óskar eftir að annast öll innkaup sjálfur þarf viðkomandi að hafa samband við skólann og fá ítarlegri lista. Námsgagnagjald ársins er kr. 3.200.- fyrir alla nemendur. Foreldrar eru beðnir um að greiða gjaldið inn á reikning 565-26-460110, kt. 460110-1140, fyrir 21. ágúst. Vinsamlegast setjið nafn barns sem skýringu/tilvísun. (Allir nemendur þurfa svo að sjálfsögðu að eiga íþrótta- og sundfatnað og frá og með 4. bekk er gert ráð fyrir að nemendur séu í skóm í inniíþróttum.)
Hér má finna innkaupalista fyrir 4.-10. bekk
Hólmatún 2 | 600 Akureyri Sími: 460 4100 Frístund: 460 4111 Netfang: naustaskoli@akureyri.is
|
|
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 460 4100 / naustaskoli@akureyri.is