11.02.2009
Nú er hafin formleg innritun í
grunnskóla Akureyrar fyrir næsta skólaár. Til að skrá börn í Naustaskóla þurfa því foreldrar að smella á
hnappinn hér til hliðar og fylla út það form sem þá birtist. Innritun á að vera lokið þann 26. febrúar nk.
Miðvikudaginn 11. febrúar nk verður kynningarfundur fyrir foreldra um val á grunnskóla. Fundurinn stendur frá kl. 20:00-22:00 og er í sal
Brekkuskóla. Á fundinum verðar stuttar kynningar á öllum grunnskólum bæjarins. Foreldrar barna sem fædd eru árið 2003 eru
sérstaklega hvattir til að mæta! Að venju hefur einnig verið gefinn út bæklingur með kynningum á grunnskólunum og má nálgast hann
hér.