Innritun nemenda fyrir næsta vetur er nú hafin og er frestur til innritunar til 26. febrúar.
Kynningarfundur vegna vals um grunnskóla verður haldinn miðvikudaginn 10. febrúar kl. 20:00-22:00 í sal Lundarskóla. Þar flytja stjórnendur
grunnskólanna á Akureyri stuttar kynningar á sínum skólum og tækifæri gefst til fyrirspurna. Foreldrar barna sem
fædd eru árið 2004 eru hvattir til að mæta!
Skólarnir verða svo með opið hús kl. 09:00-11:00 fyrir foreldra eftirtalda daga í febrúar:
Fimmtudaginn 11. febrúar - Glerárskóli og Lundarskóli
Mánudaginn 15. febrúar - Oddeyrarskóli, Brekkuskóli og Giljaskóli
Þriðjudaginn 16. febrúar - Síðuskóli og Naustaskóli
Hér má nálgast bækling með upplýsingum um skólana og hér má finna umsóknareyðublöð og form til rafrænna umsókna.