Innritun nemenda að ljúka..

Formlegri innritun nemenda í grunnskóla bæjarins er nú lokið, en lengi er von á einum eins og við vitum... Niðurstaðan er sú að þegar þetta er skrifað eru 117 nemendur innritaðir í skólann sem skiptast þannig á árganga;

Árg. 2003; 29 nemendur
Árg. 2002; 24 nemendur
Árg. 2001; 18 nemendur
Árg. 2000; 12 nemendur
Árg. 1999; 14 nemendur
Árg. 1998; 14 nemendur
Árg. 1997; 6 nemendur

Enn eru reyndar nokkrir að hugsa sig um þannig að einhverjir gætu bæst í hópinn áður en yfir lýkur....