Jólaböll fyrir 1.-3. og 4.-7. bekk

Böll fyrir nemendur í 1.-3. og 4.-7. bekk verða haldin fimmtudaginn 13. desember.  Það er 10. bekkur sem heldur böllin og eru þau liður í fjáröflun þeirra vegna væntanlegs útskriftarferðalags. Tímasetningar eru sem hér segir: 1.-3. bekkur kl. 16:15-17:30 4.-7. bekkur kl. 18:00-19:30 Aðgangseyrir er 300 krónur og sjoppan er opin. Allir að mæta með jólasveinahúfur :)