Kynjahlutföll í foreldraviðtölum

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans gerðum við athugun á því í viðtölunum núna eftir áramótin hvernig mætingar foreldra skiptust eftir kynjum.  Niðurstöðuna má sjá í myndritinu hér fyrir neðan en það er nokkuð ljóst að í þessum efnum hallar verulega á karlkynið.  Feður nemenda við Naustaskóla mega því sannarlega taka þetta til athugunar og væri gaman að sjá breytta mynd næst þegar við athugum þetta mál...!!