01.12.2010
Nú höfum við opnað fyrir
innslátt á leiðsagnarmati í mentor. Við biðjum foreldra um að setjast með börnum sínum við tölvuna og leggja sameiginlega mat
á hvernig hefur gengið það sem af er vetri, hvort eitthvað megi betur fara og hvort einhverju þurfi að koma á framfæri við kennara.
Mælst er til þess að þessu sé lokið fyrir 15. desember. Kennarar leggja á sama hátt mat á haustönnina og að því
búnu geta foreldrar nálgast sameiginlegt mat á mentor.is Athugið að til að nálgast leiðsagnarmatsformið þarf að fara inn á
vefinn með aðgangi nemendanna sjálfra. Leiðbeiningar fyrir þetta má nálgast hér.