Maturinn kemur frá Naustatjörn

Ákveðið hefur verið að eldhús Naustatjarnar muni sjá um matreiðslu fyrir Naustaskóla þangað til við fáum okkar eigið eldhús.  Maturinn verður því eldaður í leikskólanum en síðan fluttur yfir og skammtaður í skólanum.  Þar sem ekki er um að ræða matsal í þessum áfanga byggingarinnar gerum við ráð fyrir að nemendur matist á sínum heimasvæðum.  Gera þarf nokkrar breytingar á eldhúsi Naustatjarnar, bæta við búnaði o.fl. og er unnið að undirbúningi þeirra mála.