Morgunfundir foreldra

Dagana 8.-11. september, verða morgunfundir fyrir foreldra í 2.-10. bekk Þar er um að ræða kynningu fyrir foreldra á starfi barnanna í skólanum o.fl. auk þess sem tækifæri gefast til umræðna og fyrirspurna. Fundirnir verða kl. 8:10- 9:10 að morgni, nemendur mæta einnig á sama tíma og venjulega þessa daga nema nemendur í 8.-10. bekk sem fá að sofa örlítið lengur þann 11. sept. Fundirnir verða sem hér segir: 2.-3. bekkur þri. 9. september kl. 8:10 4.-5. bekkur mán. 8. september kl. 8:10 6.-7. bekkur mið. 10. september kl. 8:10 8.-10. bekkur fim. 11. september kl. 8:10 (nemendur í 8.-10. bekk mæti þann dag kl. 9:15) Mikilvægt er að fulltrúar frá öllum nemendum mæti á fundina!