Morgunfundir og skólafærninámskeið

Í vikunni 5.-9. september höldum við morgunfundi fyrir foreldra nemenda í 2.-9. bekk og skólafærninámskeið fyrir foreldra 1. bekkinga.  Tímasetningar þessara viðburða eru sem hér segir: 1. bekkur - skólafærninámskeið miðvikudaginn 7. september kl. 17:30-20:00 2.-3. bekkur - morgunfundur miðvikudaginn 7. september kl. 8:10-9:10 4.-5. bekkur - morgunfundur föstudaginn 9. september kl. 8:10-9:10 6.-7. bekkur - morgunfundur þriðjudaginn 6. september kl. 8:10-9:10 8.-9. bekkur - morgunfundur mánudaginn 5. september kl. 8:10-9:10 Þessir atburðir eru liður í nauðsynlegri upplýsingagjöf til foreldra og væntum við þess að fulltrúar allra nemenda mæti. Nánari upplýsingar um fundina er að finna í septemberfréttabréfinu.