Myndir frá jólaþemadögunum

Gleðilegt jólaföndur!
Gleðilegt jólaföndur!
Jólaþemadagarnir okkar voru 6.-7. desember þetta árið.  Þessa daga höfðu nemendur val um ýmis viðfangsefni, fóru milli hinna margvíslegustu stöðva í skólanum og spreyttu sig á alls konar verkefnum, leikjum, spilum og föndri.  Þetta tókst svona líka glimrandi vel og var ekki annað að sjá en bæði börn og fullorðnir skemmtu sér hið besta og væru óðum að komast í jólaskapið alræmda.  Hér má sjá myndir frá jólaþemadögunum...