Naustaskóli með bestu þátttökuna!

Annað árið í röð fékk Naustaskóli verðlaun fyrir bestu þátttökuna í 1. maí hlaupi UFA í flokki stærri skólanna.  Það voru um 30 krakkar úr skólanum sem mættu í hlaupið, stóðu sig feiknavel og eiga því heiðurinn af því að ná þessum glæsilegu bikurum í hús.  Glæsilega gert!