Ný leið að Naustaborgum

Í samræmi við gildandi skipulag hefur aðkoman að Naustaborgum nú verið færð frá Sómatúni yfir í Ljómatún og gerð ný bílastæði þar. Um síðustu helgi var skilti sem vísar á Naustaborgir fært frá horni Sómatúns yfir að Ljómatúni. Við enda Ljómatúns er nýtt bílastæði sem einungis á eftir að malbika. Fyrir mistök hafði gönguleiðin fyrir ofan Ljómatúnið og í átt að Naustaborgum ekki verið lagfærð en nú er unnið að úrbótum þar á.