Opið hús

Sunnudaginn 17. maí kl. 15-17 verður opið hús í Naustaskóla þar sem foreldrum og nemendum gefst tækifæri til að skoða húsnæðið í fylgd starfsmanna skólans.  Athugið að auðveldasta aðkoman að húsinu er sunnanfrá (frá Lækjartúni) og gengið er inn í bygginguna um bráðabirgðainngang við suðausturhorn skólans.