Óskilafatnaður

Mikið af fatnaði hefur verið skilið eftir í skólanum við skólalok í vor og viljum við biðja foreldra og nemendur um að koma og skoða yfir snagana hjá okkur hvort þið eigið eitthvað. Hér eru reiðhjólahjálmar, snjóbuxur, íþróttafatnaður, töskur, peysur og margt fleira sem óskast sótt. Allur þessi fatnaður fer annars á Rauða Krossinn næsta þriðjudag 19. ágúst. Hér er hægt að sjá sýnishorn af því sem skilið hefur verið eftir.