26.03.2010
Þá eru nemendur komnir í
frí til fimmtudagsins 8. apríl en þá hefst kennsla að nýju skv. stundaskrá. Frístund er opin 29.-31. mars, hún er lokuð
þriðjudaginn 6. apríl en opin miðvikudaginn 7. apríl.
Miðvikudagurinn 7. apríl er viðtalsdagur, umsjónarkennarar hafa sent boðun í viðtal sem þeirra sem ástæða þykir til að hitta
á þessum tímapunkti, aðrir geta einnig óskað eftir viðtölum með tölvupósti til umsjónarkennara.
Starfsfólk skólans óskar ykkur gleði- og ánægjuríkra páska!