Prýðilega heppnaður kynningardagur

þröngt mega sáttir sitja!
þröngt mega sáttir sitja!
Kynningardagurinn okkar 9. október heppnaðist prýðilega, foreldrar mættu frábærlega og við erum sannarlega heppin að búa að svo áhugasömum foreldrahóp! Eins og að var stefnt settu foreldrar sig aðeins í spor nemenda með því að byrja daginn "í krók" og koma svo í samverustund þar sem við sungum að sjálfsögðu hið sívinsæla lag "Mama Pakita" :) Smellið hér til að sjá nokkrar myndir frá samverustundinni en eins og sjá má fyllti hópurinn "salinn" okkar...