Skólabyrjun í Naustaskóla

Skólasetning í Naustaskóla verður fimmtudaginn 21. ágúst.  Nemendur mæti á eftirfarandi tímum: kl. 10:00 2.-3.  og 6.-7. bekkur kl. 11:00 4.-5. og 8.-10. bekkur Nemendur í 1. bekk og forráðamenn mæta í viðtöl á skólasetningardaginn eða daginn eftir, tölvupóstur með upplýsingum varðandi viðtölin hjá 1. bekk hefur verið sendur út.   Á skólasetningunni hitta nemendur umsjónarkennara, fá stundaskrá og fræðast um starfið í vetur. Foreldrar eru velkomnir og við mælumst sérstaklega til þess að foreldrar nýrra nemenda í skólanum fylgi sínum börnum. Hér má nálgast fyrsta fréttabréf skólaársins en þar er að finna nánari upplýsingar varðandi skólabyrjunina..