Skólar/Kennarahópar/Kennari
Foreldrar, nemendur, kennarar, skólar og bæjarstofnanir geta tilnefnt verkefni í skóla til viðurkenningar. Tilnefna má nýbreytniverkefni um hvaðeina í skólastarfi sem unnið hefur verið að á yfirstandandi skólaári, nemendavinnu, vinnu hópa eða einstaklinga, upplýsingamiðlun (s.s. heimasíður og fréttabréf), stefnumótun og skipulag, starf eins kennara eða samvinnu þeirra, verkefni í almennri kennslu, sérgreinum eða sérkennslu, framlag annars starfsfólks skólans, forvarnarstarf, félagsstarf eða foreldrasamstarf.
Nemendur
Skólar setja sér reglur um það hvaða nemendur þeir tilnefna til viðurkenninga og senda til valnefndar. Tilnefningar eru óháðar aldri.
Viðurkenningu má veita fyrir góðan námsárangur, góðar framfarir í námi, virkni í félagsstarfi, að vera
jákvæð fyrirmynd, sýna frumkvæði eða leiðtogahæfileika, frábæra frammistöðu í íþróttum eða listum,
listsköpun eða tjáningu í skólastarfi, félagslega færni, samskiptahæfni og framlag til að bæta eða auðga
bekkjaranda/skólaanda, nýsköpun og/eða hönnun.
(Óskað er eftir að tilnefningar vegna nemenda Naustaskóla berist til skólastjóra, nefnd innan skólans
velur síðan tilnefningar til að senda áfram til skólanefndar)
Þessi samþykkt nær til allra leik-, grunn- og tónlistarskóla sem Akureyrarbær rekur eða styrkir.
Valnefnd verður skipuð einum fulltrúa úr skólanefnd, einu foreldri sem tilnefnt er af Samtaka og foreldrum leikskólabarna og einum fulltrúa frá
Skólaþróunarsviði HA. Fræðslustjóri er starfsmaður valnefndar.
Tilnefningar skulu hafa borist í síðasta lagi 9. maí.
Smellið hér til að tilnefna skóla, kennarahópa eða verkefni
Tilnefningar nemenda í Naustaskóla sendist með tölvupósti til agust@akureyri.is
Hólmatún 2 | 600 Akureyri Sími: 460 4100 Frístund: 460 4111 Netfang: naustaskoli@akureyri.is
|
|
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 460 4100 / naustaskoli@akureyri.is