Skólaslit 2015

Skólaslit vorið 2015 verða föstudaginn 5. júní sem hér segir:  Nemendur í 1., 3., 5., 7. og 9. bekk mæti á sal skólans kl. 13:00.  Nemendur í 2., 4., 6. og 8. bekk mæti á sal skólans kl. 14:30.  Skólastjóri flytur stutt ávarp og að því búnu hitta nemendur umsjónarkennara, taka við vitnisburði og fara í gegnum námsmöppur með forráðamönnum sínum. Forráðamenn eru því beðnir um að mæta á skólaslitin með börnum sínum.  Nemendur í 10. bekk mæta kl. 17:00 þar sem verður útskriftarathöfn 10. bekkjar.  Foreldar mæta að sjálfsögðu með en aðrir fjölskyldumeðlimir eru einnig velkomnir.