17.02.2015
Nú stendur yfir innritun í grunnskóla
fyrir næsta vetur og er umsóknarfrestur til 27. febrúar nk.
Upplýsingar hafa verið sendar til foreldra barna sem fædd eru árið 2009 (verðandi 1. bekkjar) en rétt er að vekja athygli á því að
ef foreldrar óska eftir að skipta um skóla fyrir börn sín þarf að sækja um í nýjum skóla fyrir þennan tíma. Vegna
skipulagningar skólanna fyrir næsta skólaár er mjög mikilvægt að innritunum ljúki tímanlega. Skólarnir hafa opin hús
á mánudag og þriðjudag í næstu viku þar sem kostur gefst á að skoða og kynna sér starfið.
Opið hús í Naustaskóla verður mánudaginn 23. febrúar kl. 9-11
Af gefnu tilefni skal tekið fram að ekki þarf að innrita nemendur aftur í sama skóla og þeir ganga í nú þegar, aðeins ef óskað
er eftir að þeir skipti um skóla. Innritunarreglur, tímasetningar kynninga/opinna
húsa, eyðublöð og rafrænt form fyrir umsóknir um grunnskóla má nálgast hér..