Sleðaferð 2.-3. bekkjar

Nemendur í 2.-3. bekk nýttu sér snjóinn um daginn og skelltu sér í Jólasveinabrekkuna einn morguninn með sleða, þotur og hvaðeina sem runnið gat, kakó og nesti. Eins og að líkum lætur reyndist þetta hin prýðilegasta skemmtun og komu allir sælir á svip heim aftur,en myndirnar segja auðvitað meira en þúsund orð...