14.02.2014
Þjálfun í samskiptum, tilfinningastjórn og athygli barna
með ADHDFjölskyldudeild Akureyrarbæjar býður börnum með ADHD að taka þátt í námskeiði til að efla færni
á ýmsum sviðum. Námskeiðið er fyrir börn fædd árið 2004 og 2005 og eru 6 börn í hverjum hóp. Áhersla er lögð
á að auka færni barna í félagslegum samskiptum, skapstillingu, sjálfsstjórn og að bæta athyglisgetu þeirra. Hópurinn hittist
tvisvar í viku 2 tíma í senn, í 5 vikur (10 skipti alls) með tveimur þjálfurum. (Þetta námskeið verður 10. mars-9. apríl 2014
á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:15-18:15) Umsóknarfrestur er til 24. febrúar. Nánari upplýsingar má nálgast hér..